Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snúrur og rafmagn

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti
Duty Free

The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom (SWI)

SWIZELDATOTK
The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom er framhald hins geisivinsæla og margrómaða tölvuleiks Breath of the Wild. Nú hefur ævintýrið stækkað og inniheldur skýin fyrir ofan Hyrule.
Nintendo
Fyrir Nintendo Switch
Ævintýraleikur
Fyrir 12+ ára
Almennt verð: 11.995 kr.9.673 kr.
Komuverslun
Sjá staðsetningu í verslun
Upplýsingar

Goðsagnarkennt ævintýri sem spannar bæði Hyrule og himininn fyrir ofan bíður þín í The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom fyrir Nintendo Switch. Í þessu framhaldi af The Legend of Zelda: Breath of the Wild velur þú hvaða leið þú ferð í gegnum hið glæsilega landslag Hyrule og dularfullu eyjarnar sem svífa meðal skýjanna. Getur þú safnað nægum styrk og hugrekki til að hjálpa Link að berjast á móti illu öflunum sem ógna konungsríkinu?

Rétt eins og í The Legend of Zelda: Breath of the Wild, bíður stór heimur þess að verða kannaður. Og heimurinn sem bíður þín að þessu sinni hefur breyst verulega..

Recall: Hæfileiki sem getur spólað hreyfingu hlutar til baka. Til dæmis getur Link notað þennan hæfileika á stein sem hefur fallið af himni til að komast upp í skýin.

Fuse: Þegar þú notar "Fuse" getur þú tengt hluti saman til að búa til ný vopn með mismunandi virkni. Svo hér er mikilvægt að gera tilraunir!

Ultrahand: Þú getur notað þennan hæfileika til að tengja eða aftengja hluti. Þú notar líka þennan hæfileika til að búa til þín eigin farartæki í leiknum!

Ascend: Þessi hæfileiki gerir þér kleift að ferðast í gegnum hluti fyrir ofan þig, til dæmis klett.

 
 
Eiginleikar
Tölvuleikir
Fyrir hvaða tölvu
Nintendo Switch
Tegund leiks
Ævintýraleikir
Aldurstakmark (PEGI)
12
Leikjahönnuður
Nintendo
Útgefandi
Nintendo
Útgáfuár
2023
Strikamerki
045496478728
Samanburður