Jólaskilamiðar ELKO veita meiri sveigjanleika
Líkt og fyrri ár býður ELKO viðskiptavinum framlengdan skilarétt á jólagjöfum til 31. janúar 2027.
Einfalt og þægilegt að skila
„Alla jafna bjóðum við 30 daga skilarétt á vörum og 30 daga verðöryggi. Öflugur skilaréttur í kringum jól gefur hins vegar öllum rými til að slaka á og njóta án þess að þurfa að skila jólagjöfum í stressi. Við viljum að allar gjafir hitti í mark og þess vegna geta viðskiptavinir bæði opnað og prófað jólagjafirnar sínar sem keyptar eru í ELKO,“ segir Jónína Birgisdóttir þjónustustjóri ELKO.
Kjósi fólk að skila eða skipta og varan er komin á útsölu eða verð hennar hefur lækkað þá gefur ELKO út inneignarnótu eða endurgreiðir mismuninn á upprunalegu verði. Þá má benda á að inneignarnótur og gjafakort ELKO renna aldrei út. „Það sem skiptir viðskiptavini okkar máli skiptir okkur máli og því viljum við standa okkur sérstaklega vel þurfi fólk að skipta eða skila jólagjöf“ segir Jónína.
30 daga skilaréttur
Það má skipta um skoðun. Þú hefur 30 daga til að prófa vöruna. Kaupandi getur skilað vöru innan 30 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu. Nánast allar vörur sem ELKO selur leyfa þér að opna umbúðir og prófa vöru en þó eru örfáir vöruflokkar sem bera takmarkaðan skilarétt, til dæmis farsímar, leikjatölvur líkt og t.d. PlayStation tölvur og þá og einnig vörur sem hægt er að afrita eða fullnýta á innan við 30 dögum.
Spurt og svarað
Allt sem þú vilt vita um 30 daga skilaréttinn í ELKO