Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung T7 Shield 2TB SSD flakkari - Blár
MUPE2T0REU





Samsung T7 Shield 2TB SSD flakkari - Blár
MUPE2T0REUAlmennt verð 39.995 kr.

Samsung T7 Shield 2TB SSD flakkari
Samsung T7 Shield SSD flakkarinn ver gögnin þín hvar sem er. Hann er með 2 TB (2000 GB) af geymsluplássi í handhægu og meðfærilegu formi sem smellpassar í bakpokann. SSD tæknin er allt að fimm sinnum hraðari en hefðbundnir harðir diskar, ásamt því að vera bæði léttari og orkusparneytnari. SSD diskar þola einnig meira hnjask.
Gagnavörn
T7 Shield sér til þess að gögnin þín eru varin frá öllum hliðum. Með AES 256 bita dulkóðun eru gögnin varin stafrænt og með IP65 vottun og þriggja metra fallvörn eru þau varin frá hnjaski.
Hraði
Drifið er með allt að 1050 MB/s leshraðar og 1000 MB/s skrifhraða sem gerir þér kleift að færa stórar skrár á örfáum sekúndum.
Í kassanum
- Samsung T7 Shield SSD flakkari
- USB-C í USB-C snúra
- USB-C í USB-A snúra