Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung Galaxy Z Flip5 512GB snjallsími - Grár
Samsung Galaxy Z Flip5 snjallsíminn er hannaður fyrir þá sem vilja stóran skjá sem hægt er að brjóta saman í lítinn síma. Samanbrotinn kemst hann auðveldlega í vasa en þegar hann er opinn færð þú aðgang að stærri skjá en á Galaxy S23+. Flip5 snjallsíminn er þynnri en forveri sinn með nýjum lömum með engu bili. Innri skjárinn er líka með þynnri römmum fyrir betri upplifun.
Betri myndir
Samsung Galaxy Z Flip5 er nánast með innbyggðum stand, opnaðu hann hálfa leið og stilltu honum þar sem þú vilt. Svo er auðvelt að breyta hallanum á milli 75 og 115° til að taka upp það sem þú vilt. Náðu öllum í hópmyndina eða taktu frábærar sjálfur með aðalmyndavélunum.
Flott báðum megin
Þú - eða viðfang þitt - getið séð niðurstöðurnar á fremri skjánum og fundið bestu stellinguna áður en myndin er tekin. Þetta þýðir líka að þú getur tekið myndir sjálfur með bakmyndavélinni. Hún er með stærri nema en innri myndavélin svo hún nær meira ljósi og nákvæmari smáatriðum.
Handfrjálsar myndir
Nú þarft þú ekki að styðja við símann eða setja upp tímastilli. Með Galaxy Z Flip 5 er nóg að veifa að myndavélinni til að taka mynd.
Myndsímtöl
Þú getur gert meira en tekið handfrjálsar myndir. Ef þú ert í myndsímtali er auðvelt að gera eitthvað annað á sama tíma - elda, laga hárið eða slaka af í sófanum - þú getur lagt símann frá þér hálfopinn og haldið áfram í beinni.
Stærri ytri skjár
Einn sími, tveir skjáir. Ytri skjár Galaxy Z Flip 5 er næstum því þrisvar sinnum stærri en forveri sinn, svo þú þarft ekki að opna símann til að nota hann. Ef þú ert á fundi eða í tíma, getur þú séð allt frá tilkynningum til tölvupósta og símtala. Þú getur einnig svarað skilaboðum, stjórnað tónllist eða tekið sjálfu. Aðalmyndavélin er staðsett rétt fyrir ofan ytri skjáinn svo þú getur séð þig á meðan þú tekur myndina.
Góðar myndir - jafnvel að næturlagi
Samsung hefur tekið stór skref í átt að betri lágljósamyndum með betri birtuskilum og nákvæmari smáatriðum. Bakmyndavél Galaxy Z Flip5 er með stærri nema en forveri sinn sem nær meira ljósi í myndina. Með snjöllum og uppfærðum hugbúnaði eru myndgæðin bætt enn frekar.
Lítill en öflugur
Galaxy Z Flip5 er útbúinn öflugum Snapdragon 8 Gen 2 örgjörva. Jafnvel í kröfuhörðum verkefnum eins og streymi gefur hann ekkert eftir.
Rafhlaða sem endist
Með 3700 mAh rafhlöðu þarft þú sjaldan að hafa áhyggjur af rafhlöðunni. En þegar tíminn rennur upp ert þú ekki lengi að hlaða hann. Galaxy Z Flip5 styður hraðhleðslu, þráðlausa hleðslu og getur hlaðið önnur tæki þráðlaust.
Ending
Galaxy Z Flip5 er gerður úr endingargóðum efnum, að innan sem utan. Ytri skjárinn er verndaður af Gorilla Glass Victus 2 og ramminn er gerður úr Armor Aluminium. Ynnri skjárinn þolir allt að 200.000 brot. Síminn er einnig IPX8 vatnsvarinn.
Smáforrit
Ytri og innri skjárinn vinna saman. Byrjaðu ævintýri á ytri skjánum og haltu áfram á innri 120 Hz skjánum hvenær sem er.
Í kassanum
- USB-C hleðslusnúra
- SIM tól
- Leiðbeiningar
Kaupauki: Kaupauki fylgir með út júlí. Galaxy Buds2 heyrnartól fylgir með Samsung Galaxy Z Flip5 og Z Fold5 snjallsímum. Sótt um kaupauka eftir kaup á samsungmobile.is/kaupaukar