Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung Galaxy XCover 7 128 GB snjallsími - Svartur
Samsung Galaxy XCover 7 snjallsíminn er hannaður fyrir erfiðar aðstæður. Taktu myndir með 50 MP aðalmyndavélinni eða 5 MP sjálfumyndavélinni.
Sterkbyggður
Galaxy XCover 7 er með þykka skel sem hylur símann og tryggir góða vörn. Bakk og valmyndartakkarnir eru allir alvöru takkar, svo auðvelt er að stjórna símanum í vasanum, í rigningu eða með skítugar hendur. Siminn er einnig IP68 ryk-og vatnsvarinn og uppfyllir staðla MIL-STD-810H. Hann þolir ýmsar aðstæður eins og titring, há og lá hitastig og endist allt að 30 mínútur í 1,5 m djúpu vatni. Einnig er hægt að sótthreinsa símann með bakteríudrepandi efnum ef þörf er á.
Skjár
Galaxy XCover 7 er með stórum 6,6" snertiskjá með 1080 x 2408 upplausn. Skjárinn er varinn öflugu Gorilla Glass Victus+ og með Glove Mode ham er hægt að nota skjáinn með þunnum hönskum eða jafnvel blautum skjá.
Myndavél
Að framan finnst 5 MP sjálfumyndavél með f/2.0 ljósopi. 50 MP aðalmyndavélin er með f/1.8 ljósop sem gefur skarpar, hágæða myndir jafnvel við lág birtuskilyrði.
Fjarlæganleg rafhlaða
Öfluga 4050 mAh rafhlaðan veitir símanum langa endingu og ef hún er ekki nóg er auðvelt að hlaða símann með USB-C snúru eða einfaldlega skipta um rafhlöðu. Hlustaðu á tónlist eða heyrðu í kúnnum tímunum saman. Athugið að auka rafhlaða fylgir ekki með símanum.
Kraftur
Í símanum er átta kjarna MediaTek örgjörvi og 6 GB af vinnsluminni - nægur kraftur fyrir hispurslausa frammistöðu í langflestum tilvikum. Síminn er með 128 GB geymslupláss sem hægt er að stækka með microSD minniskorti í allt að 1 TB stærð (selt sér).
Aðrir eiginleikar
- XCover Key - Stillanlegur hliðartakki
- Dual SIM með NanoSIM eða eSIM
- WiFi 5 (802.11ac)
- Bluetooth 5.3