Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung Galaxy Watch6 Classic 43mm BT snjallúr - Svart
Heilsa
Vantar þér hvatningu og innblástur fyrir betri velferð? Vilt þú vita meira um líkama þinn? Kannski þarftu hjálp með svefninn? Galaxy Watch6 Classic er með tólin. Google Wear OS veitir stuðning og aðgang að fjölda líkamsræktar- og heilsusmáforritum - frá Samsung og öðrum. Úrið fylgist með ræktarplaninu þínu, svefn, hjartslætti, hreyfingu og er með innbyggðum lífstílsþjálfa. Fylgstu með svefn og streitu á einfaldan máta og með sjálfvirkum æfingamæli sér úrið til þess að þú beitir þér rétt og hvílir þig vel. Settu þér dagleg markmið með Daily Activity Goal til að halda þér á réttri braut og hámarka árangur. Þú getur fundið uppáhalds smáforritin þín í Galaxy Store og Google Play Store.
Svefn
Galaxy Watch6 mælir svefninn þinn. Til að hjálpa þér að bæta svefngæði, mælir Galaxy Watch6 Classic og skráir hversu mikill svefn er léttur, djúpur og REM. Með þessum gögnum færð þú ábendingar og leiðbeiningar um betri svefn.
Hjartsláttarmælir og ECG
Innbyggði mælirinn nemur sjálfkrafa hjartsláttinn þinn og sendir þér tilkynningu ef hjartslátturinn hefur verið óreglulegur svo þú getur tekið ECG með úrinu til að fá meiri upplýsingar.
Æfingar
Jóga, hjólreiðar eða hlaup? Veldu á milli fjölda heilsukerfa og æfinga sem henta þér og vinum þínum.
Sterkbyggt
Hafðu engar áhyggjur af úrinu þínu. Með 5 ATM vottun stenst úrið að vera við 50 metra dýpi, eða við 5 ATM þrýsting. Úrið er höggvarið og er með bæði MIL-STD-810G og IP68 vottun. Skjárinn er verndaður með sterku Sapphire Crystal gleri.
Hönnun
Galaxy Watch6 Classic úr ryðfríu stáli með snúningsskífu er þunnt úr með stílhreinni hönnun sem hentar öllum tilefnum. Samsung Galaxy Watch6 Classic fæst í 47 og 43mm stærðum í tveimur litum. Útlit klukkunnar er undir þér komin - hægt er að velja úr fjölda útlita. Einnig er einfalt að skipta um ól með einum smelli í stíl við skífuna eða fötin þín.
One UI 5 með Wear OS
One UI 5 viðmótiðð er hratt og notendavænt, sem veitur þér greiðan aðgang að smáforritum og eiginleikum sem þú notar mest. Einnig er hægt að stjórna viðmótinu með röddinni eða snertiskjá með viðbragði. Wear OS stýrikerfið veiitr þér aðgang að og styður fjölda smáforrita og eiginleika. Að sjálfsögðu er hægt að nota eiginleika hispurslaust á milli tækja. Mörg hentug Google forrit eru aðgengileg á Watch6, þar á meðal Gmail, Calendar og Google Photos.
Rafhlöðuending
Nýja endingargóða rafhlaðan endist í allt að 40 klukkustundir af hefðbundinni notkun. Þú getur notað úrið allan daginn (fer eftir notkun) og úrið hleðst að fullu á tveimur klukkustundum. Rafhlaðan vinnur saman með örgjörvanum til að spara rafmagn strax og tækifæri gefst.