Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung Galaxy Buds2 Pro þráðlaus heyrnartól - Grá
Samsung Galaxy Buds2 Pro þráðlausu heyrnartólin taka hlustunina upp í nýjar hæðir. Heyrnartólin eru útbúin 24-bita HiFi hljóm, ANC hljóðeinangrun (e. Active Noise Cancellation), Bluetooth 5.3 tengingu og þægilegri hönnun sem er 15% minni en forveri heyrnartólanna.
Snjöll hljóðeinangrun
Virka hljóðeinangrunin sker út óþarfa umhverfishljóð og gerir þér kleift að njóta þess sem þú vilt heyra. Mögulegt er að minnka kraft einangrunarinnar ef þú vilt ekki einangra þig alveg frá heiminum í kringum þig. Intelligent Conversation Mode gefur þér kost á því að heyra vel í þeim sem eru í kringum þig.
Hljómgæði
Galaxy Buds2 Pro eru sérstaklega hönnuð fyrir bæði tónlist og kvikmyndir. Heyrnartólin eru með tvöfalt hátalarakerfi, þar sem 10 mm hátalari sér um að veita þér djúpan og áhrifaríkan bassa og 5,3 mm hátalari veitir þér skýran og fallegan hljóm. 24-bita HiFi hljómgæði veita þér sanna stúdíó upplifun.
Ný vídd í hljóði
Með 360 Audio fylgja heyrnartólin hreyfingum höfuðsins og veita þér persónulegri upplifun sem hreinlega umlykur þig.
Hönnun
Heyrnartólin eru allt að 15% minni en forveri þeirra sem gerir þau enn léttari og þægilegri í amstri dagsins svo þú getir notið þess að hlusta á uppáhalds tónlistina í göngutúrnum, vinnunni eða á ferðalaginu.
Bluetooth 5.3
Bluetooth tæknin tryggir fullkomin hljómgæði, þráðlaust. Einfalt mál er að tengja saman heyrnartólin við snjalltæki sem styðja Bluetooth tengingar. Auto Switch tækni einfaldar þér að skipta á milli tækja.
Rafhlöðuending
Heyrnartólin eru hönnuð til þess að endast út daginn. Með kveikt á ANC hljóðeinangrun duga heyrnartólin í allt að 5 + 18 klukkustundir en með slökkt á ANC hljóðeinangruninni eru heyrnartólin með allt að 8 + 30 klukkustunda rafhlöðuendingu.