Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Roborock Q8 Max ryksuguvélmenni - Svart
Roborock Q8 Max ryksuguvélmennið ryksugar og moppar, er með 5500 Pa sogkraft, PreciSense LiDAR skynjara og 240 mínútna rafhlöðuendingu.
Ryksugar og moppar
Roborock Q8 Max bæði ryksugar og moppar gólfin. Roborock Q8 er með 5500 Pa sogkraft og fer létt ryk og önnur óhreinindi.
DuoRoller burstar
Roborock Q8 Max er með DuoRoller burstum sem tryggja enn dýpri hreinsun, jafnvel án moppunnar. Þeir koma einnig í veg fyrir flækju og stíflu. Ef gólfið þitt er fullt af gæludýrahárum eða miklu magni af óhreinindum mun Q8 Max hreinsa það upp á skilvirkan hátt.
Aðlagar sig að teppum
Vélmennið áttar sig sjálfkrafa á því að sé á teppi og stillir sogkraftinn í samræmi við það.
PreciSense LiDAR leiðarstýring
PreciSense LiDAR kerfið skannar umhverfið og notar jöfnur til að átta sig á umhverfinu betur. Ryksugan gerir greinarmun á húsgögnum, teppum, veggjum, hornum og fleira í umhverfinu. Roborock býr til kort af heimilinu þínu og lærir að vinna betur með umhverfi sitt í hvert sinn.
Tímastilling og dagskrá
Búðu til dagskrá og tímastilltu hvenær og á hvaða degi ryksugan á sjálfvirkt að þrífa heimilið.
Endurhlaðanleg rafhlaða
Roborock Q8 Max er með 5200 mAh Li-ion rafhlöðu sem getur unnið í allt að 240 mínútur á fullri hleðslu. Með ryksugunni fylgir hleðslustöð sem ryksugan tengir sig sjálf við eftir þrif að hverju sinni. Ef rafhlaðan er að klárast í miðju kerfi þá fer ryksugan í hleðslustöðina og klárar svo verkið þegar ryksugan er nægilega hlaðin fyrir verkið.
Roborock snjallforrit
Vertu með fulla stjórn á ryksuguvélmenninu með því að nota Roborock snjallforritið. Hægt er að nota snjallforritið með snjallsíma eða spjaldtölvu og senda skipanir hvort sem þú ert heima eða í vinnunni.