Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Ring Stick Up Cam Pro öryggismyndavél
Ring Stick Up Cam Pro öryggismyndavél veitir heimilinu þínu aukið öryggið. Full HD upptökugæði með HDR og mynd er í lit þó það sé nótt. Hægt er að tala saman í gegnum myndavélina og þú færð tilkynningar frá myndavélinni beint í símann þinn. Með Bird's Eye View stillingunni er hægt að skoða kort af lóðinni þinni og sjá hvar á lóðinni hreyfing hefur verið numin.
Wi-Fi dual-band tenging
Myndavélin tengist Wi-Fi með bæði 2,4 og 5 GHz stuðning og streymir myndböndum í HD gæðum með hljóði beint í símann þinn eða önnur tæki. Styður Android, iOS, Mac og Windows 10/11 tæki.
Framúrskarandi upptökugæði
1080p upplausn með HDR gerir myndefni greinilegt og skýrt, þó að nóttin bresti á þar sem nætursjónin viðheldur sömu upplausn og lit.
Nætursjón í lit
Sjáðu í lit á næturna eða í dimmu og fáðu því greinilegri sýn á hvað er um að vera í kringum heimilið þitt.
Hljóðnemi og hátalari
Myndavélin er með bæði hljóðnema og hátalara og því hægt að tala við fólk sem stendur í nálægð við myndavélina.
3D hreyfiskynjun
Innbyggð ratsjá skynjar hreyfingar allt að 10 metrum í burtu. Hægt er að velja svæði til að fylgjast með og önnur svæði til að hunsa og hægt er að forgangsraða svæði svo þú fáir ekki alltaf viðvörun í símann þegar myndavélin skynjar hreyfingu. Með Birds Eye eiginleikanum getur myndavélin búið til kort af lóðinni þinni og les í gögn og merkir inn á kortið hluti með mismunandi lituðum punktum.
Bird's Eye View og Bird's Eye Zones
Sjáðu nákvæmlega hvar fólk er og hefur verið á lóðinni þinni með Bird's Eye View eiginleikanum sem sýnir þér kort með öll hreyfingum merktum inn á kortið. Veldu sérstök svæði til að vera í hærri forgangi og fáðu viðvaranir beint í símann með Bird's Eye Zones eiginleikanum.
IP65 ryk- og vatnsvörn
Með IP65 ryk- og vatnsvörn er öryggismyndavélin vel varin í slæmu veðri sem gerir hana frábæra sem öryggismyndavél utandyra, en að sjálfsögðu er hægt að nota öryggismyndavélina innandyra.