Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Philips Series 5000 rakvél S5898/25
Philips Series 5000 rakvél S5898/25 er með SteelPrecision rakvélablöð, SkinIQ og Hair-Guide Precision haus sem tryggir þægilega notkun án ertings. Power Adapter aflskynjari stillir til afl eftir magni og þykkt skeggsins. Hægt er að nota rakvélina í sturtu líka.
SkinIQ tækni
SkinIQ tækni bætir stíltækni þína og hjálpar þér að raka þig í færri skrefum.
Power Adapter skynjari
Andlitshárskynjarinn les hárþéttileikann 500 sinnum á sekúndu og aðlagar rakvélina að því fyrir þægilegan og almennilegan rakstur.
Sveigjanlegur
Hausinn er sveigjanlegur og leggst því vel upp að húð sem eykur bæði getu og minnkar ertingu.
Hair-Guide Precision haus
Kringlóttur Hair-Guide Precision haus sker mjög nálægt húðinni af mikilli nákvæmni.
SteelPrecision rakvélablöð
SteelPrecision blöðin eru skilvirk og skera allt að 90.000 sinnum á mínútu. Að auki eru 45 afkastamiklu blöðin sjálfbrýnandi og endingargóð.
Rafhlaða
Endurhlaðanlega lithium-ion rafhlaðan endist í 60 mínútna notkun. Það tekur eina klukkustund að hlaða hana að fullu.
Bartskeri
Innbyggður bartskeri á bakvið rakvélina hjálpar þér að halda skegginu þínu snyrtilegu.
Wet & Dry
Rakvélin er vatnsheld og má því nota í sturtu, með froðu eða á þurra húð. Notaðu hana eins og hentar þér best.
Philips GroomTribe smáforrit
Paraðu rakvélina við Philips GroomTribe smáforritið, fylgstu með húðinni og bættu raksturinn.