Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
JBL Wave Beam 2 þráðlaus heyrnartól - Svört
JBLWBEAM2BLK






JBL Wave Beam 2 þráðlaus heyrnartól - Svört
JBLWBEAM2BLKAlmennt verð 13.995 kr.

JBL Wave Beam 2 þráðlaus heyrnartól
Upplifðu náttúrulega tónlist með JBL Wave Flex þráðlausu heyrnartólunum. Hlustaðu á uppáhaldstónlistina þína í allt að 40 klst í senn á meðan JBL Deep Bass Sound gefur þér ótrúlega góð hljómgæði. Smart Ambient og VoiceAware gera þér kleift að stjórna nákvæmlega því sem þú vilt heyra. Heyrnartólin hafa IP54 ryk- og skvettuvörn.
JBL Deep Bass Sound
JBL hefur langa sögu af verkfræðilega kristaltæru og áhrifamiklu hljóði, og þessi heyrnartól eru engin undantekning. Njóttu þess að hlusta á kröftugan bassa hvar sem þú ert.
Virk hljóðeinangrun og Smart Ambient tækni
Heyrnartólin eru búin virku hljóðeinangrunarkerfi (ANC) sem útilokar óæskileg umhverfishljóð, þannig að þú getur einbeitt þér að tónlistinni eða símtölunum þínum án truflana. Smart Ambient tækni gerir þér kleift að stilla hversu mikið af umhverfishljóðum þú vilt heyra, svo þú getir átt samskipti við aðra eða verið meðvitaður um umhverfið án þess að taka heyrnartólin úr.
Fjórir hljóðnemar fyrir skýr símtöl
Hvert heyrnartól er búið tveimur hljóðnemum sem taka upp og flytja rödd þína skýrt á meðan þau útiloka umhverfishljóð. Þetta tryggir skýr og greinileg símtöl, jafnvel þegar þú ert á ferðinni í hávaðasömu umhverfi.
Fjölpunktatenging og hraðpörun
JBL Wave Beam 2 geta tengst tveimur tækjum samtímis, sem gerir þér kleift að skipta á milli tækja án fyrirhafnar. Með Fast Pair tengjast heyrnartólin fljótt og auðveldlega með einum smelli.
IP54 ryk- og skvettuvörn
Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af svita, ryki eða vatni því heyrnartólin hafa IP54 ryk- og skvettuvörn.
JBL smáforrit
Náðu í JBL Headphones smáforritið og sérsníddu hljóðstillingarnar þínan þannig að þær passi fullkomlega fyrir þínar þarfir.