Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
JBL Tune 520BT þráðlaus heyrnartól - Hvít
Hlustaðu á uppáhalds tónlistina þína allan daginn með JBL Tune 520BT þráðlausu heyrnartólunum. Bassinn nær nýjum hæðum með JBL Pure Bass Sound og heyrnartólin endast allt að 57 klukkustundir í senn. Auðvelt er að stjórna tónlist með JBL Headphoness smáforritinu og talþjónunum Google Assistant og Amazon Alexa.
JBL Pure Bass Sound
JBL er með víðtæka reynslu af gerð heyrnartóla og hljóðs. Með JBL Pure Bass Sound er bassinn djúpur, megnugur og skýr.
Rafhlöðuending
Með allt að 57 klukkustunda rafhlöðuendingu er óhætt að hlusta á tónlist allan daginn án þess að hafa áhyggjur af því að þurfa að hlaða. Það tekur aðeins 2 klukkustundir að hlaða heyrnartólin að fullu.
Voice Aware
Stjórnaðu hljóðinu og símtölum beint úr heyrnartólunum þínum með hnöppum á heyrnartólunum. Þú getur stillt hversu mikið þú heyrir í röddinni þinni á meðan þú talar í símann með Voice Aware.
Raddstýring
Fylgstu með tilkynningum, skiptu um lag eða lagalista eða aflaðu þér upplýsingar með Google Assistant talþjón. Raddstýring gerir notkun þægilegri þar sem óþarfi er að taka upp símann.
Hönnun
Taktu heyrnartólin með þér í ferðalagið. Þau eru létt og brjótast saman svo það er auðvelt að taka þau hvert sem er.
Tengist við fleira en eitt tæki
Bluetooth tenging heyrnartólanna styður fleiri en eitt tæki svo auðvelt er að hætta að hlusta í símanum og byrja að horfa á mynd á spjaldtölvunni og svo svara símanum ef einhver hringir samstundis.