Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Huawei Watch Fit 4 snjallúr - Svart
SEIYAB19FBLA









– 21%
Huawei Watch Fit 4 snjallúr - Svart
SEIYAB19FBLAVerð áður 22.577 kr.

Huawei Watch Fit 4
Huawei Watch Fit 4 snjallúrið hentar jafnt í daglegu lífi sem og krefjandi æfingum. Úrið er einungis 9,5 millimetrar að þykkt og skjárinn er 1,8" AMOLED með allt að 2000 nits, sem tryggir að þú getir auðveldlega lesið úr skjánum jafnvel í beinu sólarljósi. Auk þess sýnir úrið veðurupplýsingar, veitir aðgang að tónlistarspilara og birtir tilkynningar úr símanum beint á úlnliðnum.
Snjallúrið styður GPS leiðsögn og er samhæft öppum í gegnum HUAWEI Health appið, þar sem hægt er að sækja æfingargögn, skoða kort og skipuleggja komandi æfingar. Úrið er einnig með innbyggðann fallskynja sem eykur öryggi í krefjandi aðstæðum og 5 ATM vatnsþol sem þýðir að úrið þolir að vera í allt að 50 metra dýpi í stutta stund.
Heilsa og líkamsrækt
Watch Fit 4 fylgist með hjartslætti, svefni, streitu og öndun. Það býður upp á HRV-mælingar (e. Heart Rate Variability) og viðvaranir við óreglulegri öndun. Með yfir 100 æfingastillingum, þar á meðal hlaup, hjólreiðar og fjallgöngur, færðu nákvæma skráningu á allri hreyfingu. Innbyggðar æfingar með leiðbeiningum hjálpa þér að halda þér virkum – jafnvel án síma.
Sunflower staðsetningarkerfi
Einn af hápunktum úrsins er HUAWEI Sunflower staðsetningarkerfið með tvöföldu GPS, sem tryggir nákvæma leiðsögn í útivist, hvort sem þú ert að hlaupa í óbyggðum eða í fjallgöngu. Með innbyggðum kortum sem hægt er að nota án nettengingar og sérhæfðum golfkortum, er úrið sérstaklega gagnlegt fyrir útivistarfólk og golfara.
Rafhlaðan
Allt að 10 daga rafhlöðuending eða 7 daga miðað við meðalnotkun. Það tekur aðeins 75 mínútur að fullhlaða úrið þökk sé SuperCharger.
Helstu eiginleikar:
- Þunn og létt hönnun – aðeins 27 grömm
- 1,82" AMOLED skjár með allt að 2000 nits birtustigi
- Dual-band GPS og yfir 100 æfingastillingar
- 10 daga rafhlöðuending við venjulega notkun
- Heilsumælingar: svefn, streita, hjartsláttur og öndun
- Bluetooth tenging og snjalltilkynningar
- Vatnsvarið allt að 5 ATM – hentugt í sund og rigningu
Snjallvirkni og tengingar
Úrið tengist auðveldlega við Android og iOS tæki með Bluetooth 5.2. Þú færð tilkynningar um símtöl, skilaboð og öpp beint á úrið. Einnig geturðu notað það sem fjarstýringu fyrir myndavélina eða til að finna símann þinn.