Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Apple Macbook Air M4 (2025) 15" 16/256 GB - Blá
Z1HD









Apple Macbook Air M4 (2025) 15" 16/256 GB - Blá
Z1HDAlmennt verð 247.995 kr.

Apple Macbook Air M4 (2025) 15" 16/256 GB
MacBook Air með M4 örgjörva sameinar kraft, léttleika og snjalla hönnun í einni öflugri fartölvu sem hentar bæði í vinnu og leik. Með nýjustu tækni frá Apple færðu afkastamikla vinnslu, glæsilega myndgæði og langa rafhlöðuendingu.
Hönnun og burðarvirki
MacBook Air er aðeins 1,13 cm á þykkt og vegur einungis 1,24 kg og kemst því léttilega fyrir í tösku eða bakpoka.
Apple M4 örgjörvi
Tölvan er með 10 kjarna örgjörva og 10 kjarna skjástýringu, byggðri á byltingarkenndri 3 nm tækni, sem tryggir M4 örgjörvanum ótrúleg afköst og góða orkunýtingu.
Liquid Retina skjár
15,3 tommu Liquid Retina skjárinn notar IPS-tækni með yfir fimm milljón pixlum. Með hærri birtuskilum og víðu P3 litasviði færðu nákvæma litaframsetningu sem hentar vel fyrir ljósmyndara, hönnuði og skapandi notendur. True Tone stillir litahitann sjálfkrafa eftir birtuskilyrðum og verndar augun.
Touch ID
Þessi skynjari greinir fingraför og gerir þér kleift að aflæsa tölvunni á öruggan máta. Einnig er hægt að nota Touch ID til að greiða í gegnum Apple Pay. Einnig notar skynjarinn Secure Enclave öryggisflögu fyrir dulkóðun og öruggari ræsingu á stýrikerfi, SSD geymslu og samskiptum við Siri.
Helstu eiginleikar
- örgjörvi: Apple m4 með 10 kjarna CPU og 10 kjarna GPU.
- Vinnsluminni: 16 GB, sem tryggir skilvirka vinnslu margra verkefna samtímis.
- Geymsla: 256 GB SSD, sem býður upp á hraðan aðgang að gögnum og nægt pláss fyrir skjöl og forrit.
- Skjár: 15,3" Liquid Retina skjár sem skilar skörpum og björtum myndum með 500 nit birtustigi.
- Rafhlaða: Allt að 18 klukkustunda rafhlöðuending.
- Tengimöguleikar: Tvö Thunderbolt 4 tengi, MagSafe 3 hleðslutengi, 3,5 mm heyrnartólatengi, Wi-Fi 6E, Bluetooth 5.3.
- Myndavél: 1080p FaceTime myndavél.
- Hljóð: Fjórir hátalarar sem skila djúpum bassa og skýrum hljómi.