Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Ábyrgð
Á þessari síðu finnur þú allar helstu upplýsingar varðandi ábyrgð á raftækjum úr ELKO. Mundu að þú getur fundið allar kaupnóturnar þínar á mínum síðum www.elko.is/minar
Ábyrgðarskilmálar
Ábyrgð vegna galla er í samræmi við lög um neytendakaup (lög nr.48/2003) og lög um lausafjárkaup (lög nr.50/2000).
(nema annað sé tilgreint)
Gildir fyrir allar vörur (sjá takmarkanir)
Ábyrgðarskírteini eða kaupnóta skilyrði (sjá elko.is/minar)
Lítil raftæki sem eru talin gölluð á að framvísa á þjónustuborði verslana ELKO
Stór raftæki sem eru talin gölluð þarf að tilkynna ELKO áður en tækin eru flutt úr stað
Í sumum tilfellum getur ELKO vísað kaupanda beint á umboðsaðila á Íslandi sem tekur í öllum tilfellum styttri tíma
ELKO áskilur sér rétt til að sannreyna galla innan eðlilegra tímamarka
Ef raftæki reynist ekki gallað eftir athugun eða ekki er um að ræða ábyrgðarviðgerð greiðir kaupandi skoðunargjald í samræmi við verðskrá viðkomandi verkstæðis og/eða flutning ef við á.
Ef til úrlausnar ábyrgðar kemur mun ELKO bjóða eftir atvikum viðskiptavini upp á viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa.
Í öllum tilvikum er fyrst kannaður möguleiki á viðgerð
Takmarkanir:
Ef um ræðir sölu til fyrirtækis þá er ábyrgð á galla 1 ár. Sjá nánar lið 12 í skilmálum hér: https://elko.is/skilmalar
Gildir ekki um eðlilegt slit vegna notkunar
Gildir ekki ef tækið hefur verið opnað eða átt við það nema ELKO hafi yfirumsjón með eða hafi samþykkt verkið
Gildir ekki ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar
Gildir ekki um rafhlöður. Rafhlöður eru rekstrarvara og eðlilegt getur verið að þurfi að endurnýja fyrir lok vélbúnaðarábyrgðar. Framleiðendur veita þó að lágmarki 6 mánaða ábyrgð.
Ef vara er keypt í ELKO á Keflavíkurflugvelli
Öll eftirkaupaþjónusta fer fram í verslunum ELKO á höfuðborgarsvæðinu
Takmarkanir og reglur falla undir hefðbundna ábyrgðarskilmála ELKO
Ábyrgðarskírteini eða tilvísun í kaupnótu skilyrði
Ef kaupnóta er ekki fyrir hendi er hægt að senda nafn, dagsetningu kaupdag, greiðslumáta, upplýsingar um vöru á flugstod@elko.is til að athuga með úrlausn málsins
Ef umboðsaðili er á Íslandi er í mörgum tilfellum hægt að leita úrlausnar og eftirkaupaþjónustu þar
Ef vara er eingöngu til í fríhöfn getur ferlið tafist um 3-5 virka daga. Þó er markmiðið ávallt að klára málin í þeirri verslun sem leitað er til eins fljótt og auðið er
Verkstæði og viðgerðir
GILDIR FYRIR ALLAR VÖRUR
Meðalviðgerðartími á Íslandi er 10‐15 virkir dagar. Viðgerð getur tekið allt að 20+ virka daga
Viðgerð getur tekið lengri tíma í einstaka tilvikum en það er háð breytilegum forsendum hverju sinni. Ýmsar aðstæður geta komið upp í viðgerðarferlinu sem lengir áætlaðan tíma t.a.m. ef panta þarf varahluti, viðgerð reynist umsvifameiri en áætlað var og/eða mikið álag er á verkstæði. Ef slíkt kemur upp biður ELKO kaupanda um að sýna biðlund á meðan málið er í ferli.
Ekki er hægt að kanna stöðu á viðgerð þegar vara var sett í viðgerð innan 2 vikna.
Til að stytta viðgerðartíma er kaupanda bent á að sumar vörur getur kaupandi farið með beint á verkstæði og því stytt viðgerðartímann um allt að 2‐4 daga. Framvísa þarf kaupnótu ef viðskiptavinur fer sjálfur á verkstæði með vöru.
ELKO sendir allar vörur á viðurkennd verkstæði
ELKO tekur ekki ábyrgð á gögnum tækisins sem eru á geymslueiningum s.s. á Flash minni eða hörðum diski
Tækniþjónusta ELKO getur í sumum tilfellum tekið öryggisafrit af gögnum gegn vægu gjaldi. Ekki er hægt að ábyrgjast öryggisafrit vegna utanaðkomandi þátta s.s. vírusa, bilana o.s.frv.
Þegar viðgerð er lokið er hringt í kaupanda eða sent sms og tilkynnt að varan sé tilbúin
Framvísa þarf verkbeiðni við afhendingu tækis
Allar fyrirspurnir varðandi vörur í viðgerð skulu berast á tölvupósti í viðkomandi verslun:
ELKO Lindir þjónustuborð: lindirthjonusta@elko.is
ELKO Skeifan þjónustuborð: skeifanthjonusta@elko.is
ELKO Grandi þjónustuborð: grandithjonusta@elko.is
ELKO Akureyri þjónustuborð: akureyrithjonusta@elko.is
SKOÐUNARGJALD
Ef skoðun á tækinu leiðir í ljós að bilun sé ekki rakin til framleiðslugalla fellur skoðunargjald á eiganda tækisins í takt við verðskrá verkstæðis
Vörur keyptar í verslunum Elkjop Noregi eða Elgiganten DK/SE
ELKO reynir eftir fremsta megni að bjóða upp á fulla eftirkaupaþjónstu á vörum sem keyptar eru í verslunum Elkjop Noregi, Elgiganten DK/SE eða Gigantti Finlandi. ELKO er hinsvegar ekki ábyrgðaraðili á þessum vörum og þess vegna gæti eftirkaupaþjónusta í sumum tilfellum ekki verið í boði á Íslandi. Ef þú ert með vöru keypta í þessum verslunum og þarft á eftirkaupaþjónustu að halda, s.s. ábyrgðarmál eða viðgerð, sendu þá fyrirspurn til okkar í gegnum elko@elko.is og við munum þá skoða í kjölfarið hvort eftirkaupaþjónusta sé í boði á Íslandi og senda svar hið fyrsta. Framvísa þarf ábyrgðarskirteini.