Duty free
ELKOELKO
ELKOELKO

 Skilmálar fyrir rafræn gjafakort ELKO ehf.

1. Gildissvið og útgáfa

1.1. Skilmálar þessir gilda um kaup og notkun á rafrænum gjafakortum sem gefin eru út af ELKO ehf. (hér eftir „útgefandi“).

1.2. Gjafakortin eru gefin út á rafrænu formi og afhent viðtakanda með tölvupósti eða SMS. Einnig er hægt að kaupa pappírskort, með áprentuðum QR kóða með hlekk á rafrænt kort, í verslunum. Vista þarf kortin í snjallveskjum  í snjalltækjum.

1.3. Gjafakortin eru handhafakort. Sá sem hefur kortið undir höndum telst lögmætur handhafi þess og ber almennt sjálfur ábyrgð á vörslu þess. Útgefandi ber ekki ábyrgð á tjóni sem hlýst af því ef kort glatast, er stolið eða misnotað af þriðja aðila áður en tilkynning um glötun, þjófnað, misnotkun eða beiðni um stöðvun hefur borist útgefanda með þeim samskiptaleiðum sem útgefandi tilgreinir við afhendingu kortsins eða á vef sínum. Eftir að slík tilkynning hefur borist er útgefanda heimilt, eftir því sem tæknilega er unnt, að stöðva notkun kortsins. Útgefanda er þó ekki skylt að endurútgefa handhafakort nema unnt sé að sannreyna með fullnægjandi hætti að beiðandi hafi lögmæta heimild til ráðstöfunar innistæðunnar.

2. Notkun kortsins

2.1. Gjafakortið virkar sem lögmætur greiðslumiðill fyrir vörur og þjónustu í verslunum viðkomandi útgefanda, upp að þeirri upphæð sem innistæða kortsins segir til um á hverjum tíma.

2.2. Ekki er hægt að skipta innistæðu gjafakortsins út fyrir reiðufé eða leggja hana inn á bankareikning, nema lög kveði á um annað.

2.3. Hægt er að nota gjafakortið til að greiða hluta af andvirði vöru eða þjónustu og greiða mismuninn með öðrum greiðslumiðlum sem útgefandi samþykkir.

3. Gildistími og fyrning innistæðu

3.1. Þótt ELKO gjafakort geti verið birt án sérstaks sýnilegs gildistíma í rafrænum kerfum útgefanda fyrnist krafa handhafa vegna innistæðu á kortinu samkvæmt almennum reglum um fyrningu kröfuréttinda. Fyrningarfresturinn byrjar að líða frá útgáfudegi kortsins eða frá síðustu hreyfingu þess (t.d. við notkun eða innlegg) sem slítur fyrningu að lögum.

3.2 Þrátt fyrir ákvæði 3.1 er það þjónustustefna ELKO að takmarka ekki gildistíma gjafakorta í framkvæmd. Sé hinn lögboðni fyrningarfrestur liðinn getur handhafi leitað til útgefanda sem mun þá taka við kortinu, viðurkenna innistæðuna og endurnýja gildistíma þess, að því tilskildu að unnt sé að sannreyna upphaflega innistæðu í rafrænum kerfum ELKO. Slík viðurkenning af hálfu útgefanda slítur fyrningu að lögum og virkjar kortið á ný.

 

4. Réttur til að falla frá samningi (Fjarsala)

4.1. Þegar gjafakort er keypt í gegnum netið eða með annarri fjarskiptaaðferð hefur neytandi almennt rétt á að falla frá samningnum án þess að tilgreina ástæðu innan 14 daga frá samningsgerð, í samræmi við lög um neytendasamninga. Ef rafrænt gjafakort er þó afhent þegar í stað að beiðni neytanda og afhending hefst með ótvíræðu fyrirframsamþykki hans og viðurkenningu á að hann missi þar með rétt sinn til að falla frá samningi, fellur sá réttur niður frá því tímamarki, enda komi staðfesting á slíku samþykki fram í staðfestingu á kaupum á varanlegum miðli. Til að nýta rétt sinn skal neytandi tilkynna útgefanda með ótvíræðum hætti innan frestsins.

5. Stöðvun notkunar, eldri kort og breytingar á rekstri

5.1. Útgefanda er heimilt að stöðva eða loka gjafakorti tímabundið eða varanlega ef hlutlægar og rökstuddar ástæður mæla með því, svo sem vegna tæknilegs öryggis, gruns um svik eða misnotkun, tvíútgáfu eða ef tilkynning berst um glötun eða þjófnað. Útgefandi skal, eftir því sem unnt er, tilkynna handhafa um slíka stöðvun og ástæður hennar án ástæðulauss dráttar.

5.2. Við breytingar á eignarhaldi eða rekstri útgefanda, svo og við útfösun eldri gjafakorta, þ.m.t. plastkorta útgefinna í samstarfi við Landsbankann, skulu áður útgefin kort halda gildi sínu samkvæmt þeim skilmálum sem giltu við útgáfu þeirra þar til inneign er fullnýtt eða krafa fyrnist, nema handhafa sé boðin jafngild rafræn lausn eða yfirfærsla innistæðu án kostnaðar. Ný gjafakort eru gefin út á rafrænu formi. Verði útgefandi gjaldþrota fer um kröfu handhafa vegna innistæðu eftir almennum reglum um gjaldþrotaskipti.

6. Lög og varnarþing

6.1. Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur um túlkun eða framkvæmd skilmálanna skal fyrst leitað lausnar með samkomulagi. Takist það ekki getur neytandi borið málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa eða rekið það fyrir íslenskum dómstólum samkvæmt almennum reglum.

7. Breytingar á skilmálum

7.1. Útgefandi áskilur sér rétt til að gera breytingar eða uppfærslur á skilmálum þessum hvenær sem er, m.a. vegna breytinga á lögum, tækni eða rekstrarforsendum.

7.2. Allar breytingar á skilmálum taka gildi við birtingu þeirra.

7.3. Breytingar gilda um öll ný gjafakort sem gefin eru út eftir að uppfærðir skilmálar taka gildi. Breytingar munu þó ekki skerða áunnin réttindi þeirra handhafa sem eiga gjafakort er gefin voru út fyrir gildistöku breytinganna nema með sérstöku samþykki þeirra.