Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti
Duty Free

ELKO Keflavíkurflugvelli - Panta og sækja

Athugið að þetta er eingöngu möguleiki fyrir kaup og afhendingu í brottfaraverslun.

FERLIÐ

  • Þú skoðar vöruframboð í ELKO á Keflavíkurflugvelli hér á heimasíðunni. Ef þú ert með fyrirspurn um vöruframboð er hægt að senda fyrirspurn á flugstod@elko.is

  • Þú setur það sem þú vilt panta í körfu

  • Þegar þú hefur sett allt í körfu sem þú vilt panta getur þú skoðað körfu eða smellt á afgreiðslu til að halda áfram

  • Ef þú velur að skoða körfu kemur upp 'Karfan þín' þar sem þú getur eytt út línum, breytt fjölda, eytt körfu eða haldið áfram að versla

  • Ef þú vilt senda pöntun til ELKO smellir þú á ganga frá kaupum.

  • Þú gefur upp flugnúmer, nafn og tölvupóstfang

  • Smellir á greiðslu- og afhendingarmátar

  • Pöntun er sótt í brottfaraverslun. Sjá opnunartíma hér.

  • Greiðslumáti: eingöngu er hægt að greiða þegar vara er sótt í brottfaraverslun á Keflavíkurflugvelli

  • Panta verður vörur með sólarhrings fyrirvara að lágmarki

  • Ekki er mælt með því að panta vörur með meira en viku fyrirvara

PÖNTUNARNÚMER

  • Mikilvægt er að hafa pöntunarnúmer þegar pöntun er sótt

  • Þegar pöntun er staðfest er sendur staðfestingarpóstur á uppgefið tölvupóstfang

  • Hægt er að prenta út staðfestingarpóst eða sýna starfsmanni tölvupóstinn í símanum þínum

  • Ef það kemur upp að þú fékkst ekki pöntunarstaðfestingu, er hægt að senda okkur fyrirspurn á flugstod@elko.is eða hringja í síma 575-8272

  • Ath. ef vara sem þú pantaðir er ekki á pöntunarstaðfestingunni sem er á pokanum þínum þegar þú sækir hann þá hefur hún ekki verið til þegar pöntunin var tekin saman. Þú getur spurt starfsmann um hvort varan sé komin aftur í sölu þar sem ný sending gæti hafa komið í hús eftir að pöntun var tekin til.

Greiðslumátar í verslunum ELKO á Keflavíkurflugvelli

Hægt er að greiða með greiðslukortum og peningum í verslun ELKO í brottfarasal á Keflavíkurflugvelli. Framvísa þarf brottfaraspjaldi til að versla í brottfaraverslun.

Tekið er á móti íslenskum krónum, evrum og dollurum (ISK, EURO, $)
Athugið að ekki er tekið á móti norskum, dönskum og sænskum seðlum, DKK, NOK og SEK

Samanburður