Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Bose QuietComfort þráðlaus heyrnartól - Ljósblá
Upplifðu tónlist á nýjan hátt með Bose QuietComfort þráðlausu heyrnartólunum. Með Active Noise Canceling og Aware Mode getur þú útilokað eða hleypt umhverfishljóðum í gegn. Njóttu þess að hlusta í heilan sólarhring á einni hleðslu og fínstilltu hljóminn eins og þér finnst best.
ANC hljóðeinangrun
Vertu í fullkomnu valdi yfir hljóði heyrnartólanna og hljóði umhverfisins. Hvort sem þú vilt heyra að hluta til, að fulla eða alls ekki þá er Active Noise Cancellation tækni hér til að gefa þér þetta vald. Með því að draga úr umhverfishljóðum er hægt að njóta betur hljómgæða heyrnartólanna og upplifa tónlist skýrt og fullkomlega. Kannski heyrir þú smáatirði á uppáhalds plötunum þínum sem þú hefur ekki tekið eftir áður.
Aware Mode
Þegar stillt er á Aware Mode þá aðstoða heyrnartólin þig við að heyra betur í umhverfi þínu. Hljóðnemar í heyrnartólunum skynja hljóð í umhverfinu og spila það beint í heyrnartólin samhliða tónlistinni svo maður er algjörlega meðvitaður um umhverfi sitt.
Stillanlegur tónjafnari
Stilltu hljóminn eins og þér sýnist eða veldu forstillta uppsetningu til að finna hvað hentar þér í flýti.
Þægindi í fyrirrúmi
Þægindi við notkun er mikilvægur þáttur í frábærum þráðlausum heyrnartólum og hönnun Bose QuietComfort tryggja að hægt sé að nota þau út daginn án nokkurra óþæginda. Mjúkir, sléttir púðar úr gervileðri og þrýstingur heyrnartólanna á höfði er í algjöru lágmarki.
Bluetooth tenging
Tengdu allt að tvö Bluetooth tæki samtímis og skiptu á milli þeirra þegar þú vilt.
Rafhlaða
Hlustaðu á tónlist í allt að 24 klst á einni hleðslu. Það tekur aðeins tvo og hálfan tíma að hlaða heyrnartólin úr 0 í 100% þökk sé USB-C. Hraðhleðsla veitir á 15 mínútum allt að tvo og hálfan tíma af notkun.
Í kassanum
- Bose QuietComfort heyrnartól
- Hulstur
- USB-A í USB-C snúra
- Hljóðsnúra